Almennt
Græjur.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verði eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Græjur.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá græjur.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 21 dag til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Skarkala með spurningar.
Ábyrgð
Varan er seld með þeim fyrirvara að ábyrgð er tekin á framleiðslugalla sem kemur í ljós á fyrstu 3 dögum eftir að varan er keypt, miðað við eðlilega notkun. Kaupandi þarf sjálfur að standa straum af kostnaði við að koma gallaðri vöru til okkar, nema um annað hafi verið samið.
Ábyrgð fellur úr gildi ef varan hefur orðið fyrir skemmdum af sökum slæmrar eða rangrar meðhöndlunar að mati græjur.is eða skemmst í flutningum. Ábyrgð er ekki tekin á eðlilegu sliti vörunnar.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.